Pages

Saturday 24 April 2010

BERLÍN

Föstudagur:
Lögðum af stað með rútu um klukkan hálfsjö að morgni. Vorum komin eitthvað um fimmleitið. Tékkuðum okkur inn á hostelið, átta og átta saman í herbergi, frekar crowded, en voða kósý, vorum átta stelpur í mínu herbergi. svo það var voða notalegt bara. fórum svo út að borða og fórum svo á leiksýningu. áttum upphaflega að sjá eitthvað sem heitir Revolution now, en leikararnir komust ekki til berlínar í tæka tíð, þar sem þeir gátu ekki flogið. Ég er ekki viss hvað það hét sem við sáum í staðin, en við byrjuðum semsagt að sjá endinn. þegar við komum í leikhúsið, vorum við látin fá stjörnuljós og svona dót til að kasta, og var svo sagt að fagna þegar fólkið kæmi. svo komu leikaranir og við sáum svo upptöku af síðasta klukkutímanum sem þau hefðu verið að gera fyrir okkur, frekar sérstakt.

BERLIN 018


Laugardagur:
Fyrir ferðina höfðum við fengið að velja hvað við vildum gera á laugardeginum, hver kennari var með mismunandi skoðunarferðir. Ég valdi skoðunarferð í gömlu neðanjarðarbyrgi, mjög fróðlegt að sjá og heyra, en það var alveg rosalega kalt þarna niðri!
fórum svo í göngutúr um berlín og sáum margt og mikið.


BERLIN 056
BERLIN 092


BERLIN 164


Sunnudagur:
Okkur var deilt upp í þriggja manna hópa og áttum að leysa verkefni allt í kring um Berlín. Flestir hóparnir ákváðu að fara fyrst á flóamarkað. Hann var alveg rosalega stór og margt og mikið af flottu dóti, fullt af eldgömlum myndavélum, var alveg sjúk, langaði í þær allar! en endaði samt á að kaupa ekki neina, fann samt fallegt gamalt gullúr, og hálsmen með mynd af kanínunni úr lísu í undralandi.
Ég og Zine vinkona mín gengum saman og við vorum búnar að skoða í frekar langan tíma uppgöptvuðum við að við höfðum týnt restinni af hópunum okkar, fundum svo strákana, og tókum neðanjarðarlestina aftur á okkar svæði. ekkert varð samt af verkefninu þar sem við týndum þeim aftur.
Um kvöldið hafði skólinn pantað fyrir okkur út að borða á "unsicht-bar". Þar sem maður fékk að upplifa hvernig væri að vera blindur og þjónarnir á veitingastaðnum voru blindir. Þetta var alveg rosalegt, vorum í ellefu manna hópum sem áttum að sitja saman við borð, vorum spurð hvað við ætluðum að fá að borða og drekka áður en við fórum inn. svo kom þjónninn okkar, og við áttum að halda í öxlina á næsta manni þegar við gengum inn. Þar sem við vorum leidd inn var alveg kolsvarta myrkur, en við heyrðum bara í hinum hópunum sem höfðu farið inn á undan okkur. vorum látin bíða og svo kom þjóninn og tók okkur eitt og eitt og okkur var ýtt niður í sætin hehe. svo þorði maður ekkert að hreyfa sig. maturinn kom og ég þurfti að þreifa fyrir á disknum til að vita hvað var hvar. rosalega skrýtið en mjög skemmtileg upplifun. einnig var borðað með fingrunum þar sem enginn gat séð, og nokkrir trúðar við borðið okkar sögðust vera búnir að fara úr öllum fötunum, vitum ekki ennþá hvort það var satt eða ekki...



BERLIN 172
BERLIN 173
BERLIN 182


Mánudagur:
Fórum út með okkar línum, s.s. textíl/grafísk/arkitektúr. Við byrjuðum á að fara að heimsækja hönnuð í stúdíóið sitt, með merkið Starstyling. Rosalega flott föt og geðveikt vinnustúdíó!
fórum svo og fengum pizzu í hádeigismat. fórum svo að skoða í rosalega litríka búð og tala við aðstoðarmann hönnuðarins, hjá Smeilinerer
rosalega litríkt og flott.
Eftir það fórum við svo nokkur og þræddum búðir með notuð föt, enduðum svo á sushi-i. :)




BERLIN 203


Þriðjudagur:
Tókst að gleyma myndavélinni heima!!
En á þriðjudeginum fórum við að heimsækja Tina Berning sem var alveg uppáhaldið mitt af því sem við sáum, hún er svona "fashion illustrator" (veit enganvegin hvað það heitir á íslensku) og hún var með svo fallegt stúdíó og gerði aðveg fáránlega flottar myndir og teikningar.




Hún sagði okkur frá því að hún hafði verið beðin um að teikna mynd af páfanum fyrir New York Times, viku seinna var hringt í hana og hún spurð hversvegna hann væri með sex fingur, frekar fyndið.


Við fórum svo líka að heimsækja eitthvað sem heitir BLESS, ekki alveg jafn spennandi og hönnuðurinn hafði eiginlega engann tíma til að tala við okkur, en þar var allskonar mismunandi hönnun, líkt og leðurbíll sem sófi og allskonar.






Miðvikudagur:
Fórum á einkasafn, sem var í gömlu loftvarnarbyrgi, Sammlung Boros. Rosalega flott og allt í einkaeigu og eigendurnir eiga heima á efstu hæðinni. safnið er aðeins opnað fyrir hópa sem panta skoðunarferðir, svo það voru vínglös og leikföng sumsstaðar, eftir að eigendurnir hefðu haft gesti í heimsókn. Svakalega mikið af flottum listaverkum, og hjónin hljóta að hafa verið hrifin af íslenskri hönnun, því það var mjög mikið af Ólafi Elíassyni.
fengum frí restina af deginum og það var bara rölt í búðir, farið á kaffihús og haft það notalegt.




keyrðum heim á fimmtudeginum, og við erum 17 hér í skólanum núna, það er æðislegt veður og við erum bara búin að taka því rólega, sofa borða og sitja í sólinni :)

set svo restina af myndunum inn á face við tækifæri :)