Pages

Monday 22 March 2010

Hæhæ, set her inn utkomuna af verkefninu okkar. erum svona semi anægd med thetta, hengur ekkert serstaklega vel saman og mer finnst vid hefdum alveg getad unnid meira utfra skissunum, en svona er thad bara atundum madur nær ekki ollu sem madur vil :)

færdigskitse_1

færdiskitsde2

færdigskitse_3

færdigskitse_4

færdigskitse_5

færdigskitse_6

færdigskitse_7
og ja, akvadum ad nafnid ætti ad vera a islensku svo engin myndi skilja thad, hihi.

Annars var helgina alveg rosalega god, er bara buin ad slappa af og gera nakvæmlega ekki neitt! a fostudagskvoldid um kl 12 akvadum vid reyndar, thar sem vid hofdum ekkert ad gera, ad okkur langadi ad halda party. akvadum ad vid myndum oll fara i bad og fara i finustu fotin sem vid eigum, og hittast svo eftir klukkutima. thad var rosalega gaman, alltieinnu allir ordnir vod finir :) svo var bara slappad af restina af helginni, perlad, drukkid te og horft a sjonvarpid.
Thessi vika er svo valfagsvika, eg valdi eitthvad sem heitir 3D textiler. og er alveg faranlega anægd med ad hafa valid thad! erum ad læra allskonar adferdir ad gera med efni og festa thad, veit ekki alveg hvernig eg get utskyrt thad, en ætlad taka med mer myndavelina a morgun og tha get eg tekid myndir og svo synt ykkur :) erum svo lika ad læra ad lita efnid og eins og svona "tie dye", rosalega gaman :)
I dag var svo kritar og tattoo dagur hja mer og stelpu sem heitir Zine, erum bunar ad krita a gangstettina i dag, og svo keyptum vid svona tattu i søstrene grene a sidasta midvikudag og erum med svona finar alfadisir a puttanum :)
a morgun akvadum vid svo ad thad væri finn dagur, ætlum ad vera rosa finar i skolanum, hlakkar til!
i kvold verdur svo kaffihusastemming i skolanum, og thad er guli gangurinn sem stendur fyrir thvi thar sem thau ætla ad safna ser inn pening thar sem thau eru med sitt party a laugardaginn. thad verdur huggulegt. kaka og svona :)
en ætla ad farad fa mer ad borda nuna :)

Thursday 18 March 2010

skissur

byrjunin a skissuvinnunni, skelli thessu hingad inn thar sem eg thurfti hvort ed er ad scanna thær inn i tolvuna til ad gera thær stærri :)





Wednesday 17 March 2010

Monday 15 March 2010

nýtt verkefni



hæhæhæ, vorum að fá nýtt verkefni, voðalega spennandi. eigum semsagt að teikna fatalínu, með 15 fullkláruðum "átfittum". erum að vinna í hópum 2 og 2 saman, og ég er í hóp með dreng sem heitir Søren. til þess að vinna verkefnið fengum við ljósrit af þremur málverkum, við höfum valið að nota dýrin sem við finnum, það eru hundar og froskar og allskonar, og svo höfum við búið til mismunandi brúður á pinnum til þess að nota með því. erum bara rétt að komast í gang og vorum að taka myndir af því áðan, svo ég set einhvað meira hérna inn seina þegar við erum búin að fara í gegnum það.

síðasta vika var alger geðveiki með þennann jakka, er ekki ennþá alveg búin að klára minn, en á eftir að sauma fóðrið í og finna út með kragann, annars hlakkar mér til að vera búinn með hann og taka myndir af honum.

helgin var svo voða góð, náði að slappa af á föstudaginn og svo á laugardag fórum við nokkur af "gömlu" nemendunum inn til árósa, í afmælisveislu hjá stelpu sem var hér á síðasta ári, voða gaman að komast aðeins út fyrir skólann.
röltum svo nokkur til 7/11 í gær og keyptum ben&jerrys og borðuðum ís og tókum því rólega.

annars er einhver ælupestarvírus í gangi núna, liggja 12 veikir núna og það eru einhverjir sema hafa verið með það um helgina. þarf að passa vel upp á allt svona þegar við búum svona mörg svona nálægt, svo í dag var allt hreinsað með spritti, dyrahandföng, ljósaslökkvarar, vaskar og klósett og svo er búið að sérmerkja klósett sem bara þeir veiku nota, frekar fyndið, allt stússið í kringum það. en ég vona að ég fái ekki þessa flensu, voðalega óþæginlegt held ég. þeir veiku eiga líka bara að halda sig inni á herbergjununm sínum og fá aðra til að koma með mat til þeirra því þau fá ekki að fara í eldhúsið..

annars er farið að hlýna hjá okkur núna og sólin skín, mestallur snjórinn bráðnaður, elska það! orðið bjart á morgnanna þegar ég vakna og er glöð í hjartanu með sólinni :)
styttist svo í að ég komi heim til sæta íslands, get ekki beðið, hlakkar svo til, en það verður 31. mars :)

yfir og út! :)


ég í lady gagna bolnum mínum

Thursday 11 March 2010



í þessari viku og síðustu erum við að sauma jakka með innblástur frá karlmanns yfirhöfnum, þetta er innblástursklippimyndin mín. alveg búið að vera fáránlega mikið að gera og var að sauma til fjögur í nótt, eigum svo að vera búin að klára á morgun, og ég á ennþá allveg slatta eftir. hlakkar til að geta tekið því rólega um helgina :)